head8.png

Um Okkur PDF Prenta Netfang

Svansson ehf var stofnað í Nóvember 2006.

Lögaðsetur þess er að Reykjavíkurvegi 9 í Hafnarfirði.

Svansson ehf er lítið fjölskyldu fyrirtæki með enga yfirbyggingu.
Þannig náum við að halda verðum í lágmarki.

Eigendur eru hjónin Sigurður Svansson og Ólöf Eðvarðsdóttir

Sigurður er fæddur og uppalinn Dalamaður, sonur hjónana Svans Hjartarsonar bifreiðastjóra frá Vífilsdal í Hörðudal og Eddu Tryggvadóttur bankastarfsmanns frá Arnarbæli á Fellströnd.

Ólöf er fædd á Hornafirði. Bjó þar fyrstu árin en flutti síðan á höfuðborgarsvæðið og hefur búið þar síðan. Hún er dóttir hjónana Eðvarðs Sigurjónssonar stöðvarstjóra Pósts og Síma o.fl. frá Reykjavík og Önnu Margrétar Ragnarsdóttur frá Grund við Hornafjörð.

Síminn hjá Svansson ehf er : 697-4900

Vegna ástandsins í þjóðfélaginu höfum við ákveðið að liggja ekki með báta á lager. Þess í stað tökum við niður pantanir og söfnum þeim saman í stærri sendingar, til þess að ná niður flutningskostnaði. Þannig náum við niður verðum, sem svo skilar sér til kaupenda.

Þetta fer þannig fram að viðskiptavinurinn velur sér tegund, stærð, útfærslu og lit. Við söfnum pöntununum saman og höfum síðan samband við tilvonandi kaupendur, þegar nægjanlega margar pantanir hafa borist okkur.

Þegar að því er komið að panta vöruna erlendis, borga viðskiptavinir staðfestingagjald og tryggja sér þar með verð og afhendingartíma. Staðfestingargjaldið er ca.1/3 af kaupverði bátsinns og er óafturkræft nema að við stöndum okkur ekki gagnvart kaupanda.

Stefnan er að panta ekki færri en 4-6 plastbáta í einu en nægjanlegt er að taka 2-3 gúmmíbáta eða fleiri. Því fleiri, því betra verð.

 

 
Svansson ehf | Reykjavíkurvegi 9 | 220 Hafnarfjörður | Sími: 697-4900 | PCs